Senn líður að heimför
July 27th, 2005Jæja, nú styttist heldur betur í heimför, við meira að segja aðeins byrjuð að pakka. Þar sem við erum afburða skipulagt og ábyrgðarfullt fólk þá erum við búin að setja bækur í kassa og svona hitt og þetta smálegt til að flýta fyrir áður en alvöru fluttningar hefjast. En það kostar að vera forsjáll því að í staðinn er einhvern veginn allt í kössum hjá okkur, hihi. Eigum alveg tvær og hálfa viku eftir hér í Svíaríki en hugurinn er meira eða minna á Íslandi þessa dagana svo að það er erfitt að njóta þess að vera í fríi.
Freydís er annars bara kát, er byrjuð að fá aðeins að smakka mat, það er að segja örfáar skeiðar af barnagraut eða mauksoðinni og stappaðri kartöflu. Henni finnst grauturinn æði og gapir eftir meiru en kúgaðist þessi ósköp af kartöflunni. Mín hefur sko alveg ákveðnar skoðanir á hlutunum! ![]()
Við fórum um daginn til Helsingborgar að sækja um vegabréf fyrir Freydísi hjá íslenska konsúlnum þar. Helsingborg er mjög skemmtilega borg, miðborgin er alveg við hafið og bara mjög falleg. Ákváðum að skreppa fyrir til Helsingör, fyrst við vorum þarna, og það var nú smá upplifun. Við vorum á ferð um miðjan virkan dag en samt var alveg pakkað af Svíum sem bókstaflega hlupu um borð í ferjuna. Þegar yfir var kom var eiginlega ekkert að sjá nema risa skammta af áfengi sem búðirnar höfðu stillt upp úti á götu. Þetta gerði það að verkum aða allur miðbær Helsingör virtist flæða í áfengi þar sem önnur hver búð var áfengisbúð. Við kíktum aðeins á Kronborgina og þegar við komum til baka var búið að loka búsbúðunum og þá loksins sá maður í bæinn fyrir alkohóliseruðum Svíum og mannhæðarháum bjóstöflum, hehe. Kom þá í ljós að Helsingör er hin krúttlegasta borg sem gaman er að skoða. Freydís var í banastuði allan tíman enda fékk hún svo flotta rauða derhúfu í ferðinni að það var varla hægt annað en að brosa að henni. Sjá myndir!
Jæja, er frekar andlaus, heyrumst síðar.